Doðastigið.

Nú er líkt og sorgarferli Íslendinga vegna eyðileggingar hagkerfisins sé komið á doðastigið, sífellt oftar heyrir maður að hlutirnir "séu bara svona" og " það er ekkert sem að við getum gert". Málið er að við getum gert eitthvað, það er ekki sjálfsagt að að sömu menn séu við völd, það er ekki sjálfsagt að sömu menn séu enn að selja sömu fyrirtækin sín á milli. Við sem þjóð höfum allt að segja um þessi mál, krafturinn sem að sýndi sig s.l. mánudagskvöld í Háskólabíói kom ráðamönnum algerlega í opna skjöldu, höldum þeim krafti gangandi, tökum þátt í mótmælum, skrifum í blöð, bloggum, verum reið og látum í okkur heyra, mætum á stjórnmálafundi. Því að hlutirnir eiga ekki að vera svona og þeir sem að eru ábyrgir eiga ekki að gleyma því. Við sem þjóð eigum betra skilið. Látum í okkur heyra.


Úti er ævintýri.

Endanlega úti er ævintýri.
Ekki hægt að segja annað en að fallið sé hátt hjá óskabörnum þjóðarinnar.
Orðlaus.
mbl.is Ríkið eignast 75% í Glitni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Loksins, loksins á að hefja framkvæmdir. Löngu tímabær framkvæmd enda er núverandi aðstaða ekki boðleg nokkrum manni sem þar starfar eða á leið þar um. Ný samgöngumiðstöð verður lyftistöng fyrir þau ótalmörgu fyrirtæki sem eiga afkomu sína með einum eða öðrum hætti undir samgöngum innanlands.
mbl.is Samgöngumiðstöð rís í mýrinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Niðurlæging sjómanna.

Gæslan og gæðingarnir

mynd
 Ég verð að vekja athygli á þessu máli, getur þetta talist eðlilegt?
Bergþór Gunnlaugsson

Bergþór Gunnlaugsson, yfirstýrimaður og afleysingarskipstjóri Hrafni GK 111 skrifar:

Ein mesta niðurlæging sem ég hef orðið fyrir á mínum sjómannsferli var þegar ég heyrði í fréttum, kvöldið 5.febrúar 2008 að þyrla landhelgisgæslunnar hafi verið send til að leita að hrossum austur í sveitum.

Það getur gengið að segja fólki á mölinni að hrossin hafi verið í sjálfheldu, en hvað þá að kalla út þyrlu þeim til bjargar. Það er greinilegt á þessum viðbrögðum LHG, með tilliti til þarfar fyrir þyrluaðstoð að hross eru tekin fram yfir sjómenn.!!

Þetta er náttúrulega svívirðileg framkoma við sjómenn og virðingarleysi við störf okkar til sjós.

Skipverji hér um borð á Hrafni GK 111, lenti í vinnuslysi þann 10. janúar sl. Maðurinn missti framan af litlafingri hægrihandar og stór skaddaði baugfingur sömu handar. Tók í sundur tvær sinar á vísifingri vinstri handar.

Haft var samband við vaktstöð siglinga og óskað eftir þyrlu til að koma manninum undir læknishendur. Því var synjað í tvígang að senda þyrlu á staðinn.

Við sigldum með manninn í 6 tíma til Fáskrúðsfjarðar. Við komu þangað leit læknir á áverka mannsins, hann er keyrður beint upp á Hérað í sjúkraflug til Akureyrar. Aðgerð á hinum slasaða lauk 14 tímum eftir slysið.

Við sjómenn erum mjög oft að lenda í því að okkur er synjað um þyrlu. Hef ég í það minnsta tvö dæmi um slíkt.

Í fyrravor slasaðist maður um borð í frystiskipi sem var statt á úthafskarfamiðum SV af landinu. Maðurinn klemmdist og missti fingur. Beiðni um þyrlu var synjað og þeim sagt að sigla með hinn slasaða í land.

Nú tæpu ári seinna er þessi maður ekki enn kominn til vinnu sökum þessa slyss. Hann hlaut svo heiftarlega sýkingu í sárið. Að mati lækna þá leið svo langur tími frá slysinu þar til hann komst undir læknishendur að því fór sem fór.

Maður slasaðist um borð á ísfisktogara SV af landinu á svokölluðum Melsekk. Hann hlaut höfuðáverka. Það blæddi úr öllum vitum mannsins.
Þeim var synjað um þyrlu. Þeir sigldu í land. Maðurinn var höfuðkúpubrotinn.

Fyrir nokkrum árum fór fram þjóðarátak til að kaupa stærri þyrlu sem stæðist kröfur til að bjarga áhafnarfjölda meðal fiskiskips. Sjómenn lögðu mikið af mörkum til að þessi árangur næðist. Það var síðan annað átak til að kaupa nætursjónauka til að auðvelda björgun í myrkri.

Ég stóð alltaf í þeirri meiningu að þyrlan væri okkar sjúkrabíll til sjós, sem væri hægt að leita til ef slys eða veikindi kæmu upp.

Að hafa þyrlu væri ákveðin trygging og öryggi fyrir okkur sem störfum svo langt frá allri þjónustu og erum lengi að komast í land ef eitthvað hendir.
Það er mín skoðun að þetta er falskt öryggi þegar á reynir og því virðist á öllu að betra sé að vera gæðingur í dag en sjómaður !!

Fyrir vikið, eins og staðan er í dag þá er betra að hafa enga þyrlu og vita það hreinlega að maður verði þá bara að duga eða drepast ef eitthvað hendir.

Svo er eitt athygli vert. Hagsmunasamtök sjómanna virðist vera nákvæmlega sama um stöðu umbjóðanda sinna með tómlæti hvað þetta varðar.

Spurningar mínar eru:
Hvað mörgum útköllum til sjómanna hafi verið synjað og forsendur synjunar?

Einnig kannað hvert einasta flug þyrlana, tilgang þeirra og hverjir óski eftir aðstoðinni?

Hér með óska ég eftir opinberri úttekt á starfsháttum LHG varðandi sjúkraflug.


Skiptir þjóðerni geranda máli?

Loksins fellur "þungur" dómur í nauðgunarmáli hér á landi, oft hefur verið tilefni til álikra dóma en dómstólar hafa ekki nýtt þau sem skildi. Ætli þjóðerni gerenda skipti máli í þessu samhengi? Maður spyr sig, en loksins góður dómur.
mbl.is 5 ára fangelsi fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega mikið fylgi !!

Nýji meirihlutinn nýtur gríðarmikils fylgis almennings miðað við þá grímulausu valdagræðgi og barnalega hefnigirnina sem eru hornsteinar málefnasamnings þeirra.  Þeir aðilar sem að standa að þessum meirihluta hafa orðið sér til mikillar minnkunar í huga almennings, Villi hefur líklega ekki viljað enda sinn ferill sem maðurinn sem glopraði frá sér borgarstjórastólnum með kjánaskap, en að vilja enda hann sem barnalegi strákurinn sem þurfti alltaf að hefna sín, það skil ég ekki.  

 


mbl.is 25,9% Reykvíkinga styðja nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldarleikur Björns Inga.

Björn Ingi er snillingur, um það er engum blöðum að fletta. Ég er líklega eins langt frá því að Framsóknarmaður og hægt er að verða en undanfarið hefur mér Björn Ingi þótt standa sig gríðarlega vel undir mikilli pressu. Björn Ingi kemur sterkari inn þegar frá líður, þetta er snilldarleikur hjá einum skemmtilegasta stjórnmálamanni íslendinga síðari ár.


mbl.is Björn Ingi hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bush samur við sig.

það verður alveg sama hvað alþjóðlegar eftirlitsstofnanir segja oft að engin ógn stafi af Írönum, Bush og hans valdaklíka munu ráðast inn í landið, Það verður bara búin til ástæða. Sagan sýnir okkur það. Óhuggulegt alveg hreint hvað menn geta komist upp með.
mbl.is Bush vill skýr svör frá Írönum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógeðfelld þróun!

Sonur minn er í grunnskóla í Hafnarfirði og það kemur ekki til greina að hann verði gerður að talnarunu í því starfi sem þar fer fram. Ef að skólarnir eru orðnir það stórir og ópersónulegir að börn þurfi að vera allt að því strikamerkt til að þekkjast, þá erum við sem þjóð komin í mikil vandræði. Fyrir mér snýst þetta um að virðingu fyrir einstaklingnum, sonur minn er ekki strikamerkt söluvara heldur yndisleg persóna af holdi og blóði og ég krefst þess að hann fái að halda áfram sínu lífi sem manneskja, ekki talnaruna.


mbl.is Fingrafaralesarar í lagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fleiri minnismerki um alþýðufólk.

Það er gaman að lesa svona fréttir, að reisa minnismerki um alþýðumann sem sinnti sínu starfi af mikilli elju við erfiðar aðstæður finnst mér fallegt framtak. Þetta sýnir mér að við sem þjóð erum ekki alfarið búin að gleyma því hvaðan við komum og hverja við stöndum í þakkarskuld við vegna uppbyggingar þessa lands. fleiri minnismerki myndi ég vilja sjá, t.d um alþýðukonuna sem að ól upp 18 börn, sjómanninn sem var á sjó í fjögurtíu ár, farkennara, farpósta, vinnuhjú og fleiri og fleiri. Einhverjar hugmyndir kæru lesendur
mbl.is Minnisvarði um Jón Ósmann ferjumann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband